Skátafélagið Hamar auglýsir til umsóknar stöðu skólastjóra Útilífsskóla Hamars.
Útilífsskóli Hamars er með tvær starfsstöðvar, eina í skátheimili í Logafold og aðra í grunnskóla í Grafarholti. Um er að ræða fjögur tveggja vikna námskeið sumarið 2012 fyrir 8-11 ára gömul börn. Í lok seinni viku á hverju námskeiði er einnar nátta útilega. Námskeiðin byggja á mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru sund, náttúruskoðun, klifur, sig, rötun, útieldun, skátaleikir og fleira.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf um miðjan maí.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á daglegri stjórnun, skipulagningu og umsjón með Útilífsskóla Hamars.
Ber ábyrgð á markaðssetningu og auglýsingum fyrir Útilífsskólann
Undirbúningur og skipulagning á útilífsnámskeiðum
Umsjón með starfsmannamálum s.s. ráðningum á starfsfólki Útilífsskólans, vinnuskipulagi, vinnutímum starfsmanna og samskipti við Vinnuskóla Reykjavíkur
Leiðbeina og þjálfun starfsfólk Útilífsskólans
Ber ábyrgð á daglegum rekstri og innkaupum
Hæfniskröfur
Reynsla af stjórnun
Reynsla af skátastarfi er kostur
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Færni í mannlegum samskiptum
Skipulagshæfileikar, frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
Frekari upplýsingar um starfið
Starfshlutfall 100%
Umsóknarfrestur 10.04.2011
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ottó Ingi Þórisson í síma 691-8666 eða með því að senda fyrirspurnir á ottoingith(hjá)gmail.com
Umsóknir ásamt ferilskrá skulu berast á netfangið skfhamar@simnet.is